Danskur húmör

Lífið er dejligt nú, sólin skín á frostna jörð, kaffið er gott í nýja flotta bollanum mínum og lestri á Nyhedsavisen lokið.  Það er ótrúlegt hvað dananum tekst að leika sér með tungumálið og segja skemmtilega frá.  Eins og t.d. í greininni þar sem er verið að segja frá nýútkominni tölfræðiskýrslu hér í landi.  Fyrirsögnin er "mörg dönsk svín og of lítið kynlíf" þar segir að við (danir) búum til of fá börn, keyrum í of stórum bílum og sendum massa af sms og á meðan standa 13 miljón svína og fylgjast með....... í janúar 2006 gengu 5.427.459 manneskjur um á þeim 43.098 ferkílómetrum sem danskt land er en á meðan nutu 13 miljón svína lífsins í stíum sínum.

Snilldarlega sagt frá þessum niðurstöðum.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hæ frænka! Skemmtilegt bloggið þitt

Ég er að fara til köben á mánudaginn, verst að þú búir ekki þar :/ Ég þarf að reyna að gera mér ferð fljótlega og heimsækja ykkur!!

 knús í kaf!! :*

kv Berglind 

Berglind Ó. (IP-tala skráð) 9.2.2007 kl. 19:08

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband