og áfram af engu

Vegna gífurlegs þrýstings rita ég hér nokkrar línur....... það er enn mest lítið að frétta, Arnþór enn veikur og því lítið um fréttnæmar uppákomur.

Jú fór í klippingu í fyrradag, rosagaman að fá klippingu og strípur á dönsku, orðin mjög stutthærð fyrir sumarið.

Var að útrétta í dag fyrir íslandsferð, tvær frænkur sem eiga ammli í apríl svo það var verið að versla gjafir.

Pantaði tíma í dag hjá dýralækni fyrir mig, ætla að sjá hvort hann geti gert mig normal......... eða ekki !  Tíminn er fyrir hamsturinn okkar hann Sæt, á morgun kl.13.20 lýkur hans tæplega tveggja ára ævi.  Arnþór fær söguna aðeins öðruvísi en Sætur mun veikjast á meðan við erum á íslandi og deyja !  Vona að guð fyrirgefi mér lygina.  Var það ekki í Friends þáttunum sem bróðir Moniku hélt ennþá að gæludýr hans hefðu verið gefin þegar hann var lítill drengur ? foreldrar hans hlífðu honum við sannleikanum.  Vona að ég geti sagt Arnþóri sannleikann áður en hann verður þrítugur ha, ha.

Best að halda áfram að hafa það gott hér í sólinni og 14 stiga hitanum.

Hilsen,

Linda.


« Síðasta færsla

Athugasemdir

1 Smámynd: Arnar Freyr Reynisson

Vonandi fer Arnþóri að líða betur, en ég er ánægður með að þú ert að taka þig á í blogginu, stattu þig stúlka og bloggaðu af þér lúkurnar.

Við biðjum að heilsa ykkur og knúsaðu AB og Sæt frá okkur.

New York

Arnar Freyr Reynisson, 28.3.2007 kl. 19:25

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband